Uppgjör Brims á fyrsta ársfjórðungi 2025

Uppgjör Brims á fyrsta ársfjórðungi 2025

Guðmundur Kristjánsson, forstjóri:

Rekstur Brims á fyrsta ársfjórðungi þessa árs var hefðbundinn. Verð á þorski, ýsu og ufsaafurðum á alþjóðamörkuðum voru góð en verð á karfaafurðum var áfram lágt. Botnfiskafli var áþekkur en hins vegar var engum kvóta úthlutað til íslenskra veiðiskipa í Barentshafi vegna minnkandi þorskstofns. Sala á afurðum gekk vel og birgðir minnkuðu. Veiði uppsjávartegunda var sambærileg fyrsta ársfjórðungi í fyrra. Annað árið í röð var loðnubrestur. Verð á lýsi lækkaði frá fyrra ári. Fjárhagsleg niðurstaða  ársfjórðungsins skilar sér í 9,64% ávöxtun á bókfærðu eigin fé á síðustu 12 mánuðum á sama tíma og verðbólga hefur verið að meðaltali 4,2%.

Í augnablikinu eru dökkar horfur fyrir íslensk sjávarútvegsfyrirtæki ef frumvörp ríkisstjórnarinnar sem nú liggja fyrir Alþingi verða samþykkt óbreytt.

Fyrirhuguð breyting á lögum um veiðigjald um hækkun á gjaldi á uppsjávartegundir, þorsk og ýsu hefði þýtt um 90 - 100% hærra veiðigjald fyrir félagið á árunum 2023 og 2024. En ef reiknað gjald pr. kg fyrir árið 2025 í töflum 4 og 10 í frumvarpinu er heimfært á aflann árið 2024 þýðir það um 125% hærra veiðigjald.

Þá liggur einnig fyrir Alþingi frumvarp um tengda aðila í sjávarútvegi sem setur greininni reglur sem eru á skjön við það sem almennt gildir í íslensku atvinnulífi. Verði þessar reglur að veruleika setja þær skráðum sjávarútvegsfyrirtækjum þrengri skorður en öðrum fyrirtækjum sem takmarka munu vöxt og viðgang þeirra. Það er eðlileg krafa að fyrirtæki í sjávarútvegi sitji við sama borð og önnur fyrirtæki þegar kemur að sköttum og starfsumhverfi. Annars er hætta á að íslensk sjávarútvegsfyrirtæki verði síðri kostur í augum lífeyrissjóða og annarra almennra fjárfesta sem mun draga úr getu þeirri til að vaxa og eflast í alþjóðlegri samkeppni.

Starfsemin á 1F2025

Bolfiskveiðar og vinnsla félagsins gengu þokkalega á tímabilinu. Skip félagsins veiddu um 14 þús. tonn samanborið við um 11 þús. tonn á sama tímabili í fyrra. Gulllaxveiðar gengu vel en ufsaveiði var áfram erfið. Afurðaverð á þorsk- og ýsuafurðum hækkuðu á tímabilinu og eru há í sögulegu samhengi. Afurðaverð á ufsa- og karfaafurðum hafa verið nokkuð stöðug. Áhersla hefur verið á að auka sölu á ferskum karfaafurðum frá landvinnslu félagsins og voru seld um 250 tonn af ferskum karfaafurðum á tímabilinu samanborið við 145 tonn á sama tímabili í fyrra.   

Uppsjávarveiðar skipa Brims hófust í janúar á kolmunna í færeysku lögsögunni líkt og í fyrra. Kolmunnaveiðar voru stundaðar til loka febrúar og veiddust um 18 þúsund tonn á þeim tíma og var aflanum landað í fiskimjölsverksmiðjum félagsins á Vopnafirði. Því miður fannst lítið af loðnu og aflheimildir Brims aðeins um 850 tonn sem landað var í lok febrúar á Vopnafirði.

Helstu atriði úr fjárhagsuppgjöri 1F 2025

  • Vörusala var 101,4 m€ á fjórðungnum samanborið við 94,5 m€ á fyrsta fjórðungi 2024
  • Hagnaður var 7,6 m€ á fjórðungnum samanborið við 4,5 m€ á fyrsta fjórðungi 2024
  • EBITDA var 14,9 m€ og EBITDA hlutfall 14,7%
  • Eignir lækkuðu um 24,8 m€ frá áramótum og voru 971 m€ í lok tímabilsins
  • Eigið fé þann 31. mars 2025 var 477 m€ og eignfjárhlutfall 49,1%

    ReksturSeldar vörur námu á 1F 2025 101,4 m€ samanborið við 94,5 m€ á 1F 2024.

    Rekstrarhagnaður fyrir afskriftir (EBITDA) var 14,9 m€ eða 14,7% af rekstrartekjum, en var 12,0 m€ eða 12,8% á 1F 2024.

    Nettó fjármagnskostnaður var 5,6 m€ en var 4,3 m€ á 1F 2024. Áhrif hlutdeildarfélaga voru 4,2 m€, en voru 2,0 m€ á 1F 2024.

    Hagnaður fyrir tekjuskatt var 8,7 m€, samanborið við 5,2 m€ á 1F 2024. Tekjuskattur nam 1,2 m€, en var 0,7 m€ á 1F 2024. Hagnaður tímabilsins varð því 7,6 m€ en var 4,5 m€ á 1F 2024.

    EfnahagurHeildareignir félagsins námu 971 m€ í lok 1F 2025. Þar af voru fastafjármunir 814 m€ og veltufjármunir 157 m€.

    Eigið fé nam 477 m€ og var eiginfjárhlutfall 49,1%, sem er sama hlutfall og í lok árs 2024. Heildarskuldir félagsins voru 494 m€ í lok fjórðungsins og lækkuðu um 13 m€ frá áramótum. Arður sem samþykktur var á aðalfundi og greiddur þann 30. apríl hefur verið skuldfærður í efnahagsreikningi 31. mars 2025.

    SjóðstreymiHandbært fé frá rekstri nam 22,5 m€ á fyrsta fjórðungi ársins, en var 13,4 m€ á fyrsta fjórðungi 2024. Fjárfestingar-hreyfingar jákvæðar um 5,9 m€ og fjármögnunarhreyfingar voru neikvæðar um 34,7 m€. Handbært fé lækkaði því um 6,2 m€ og var 45,9 m€ í lok tímabilsins.

    Meginniðurstöður færðar til íslenskra króna

    Séu niðurstöður rekstrarreiknings reiknaðar til íslenskra króna á meðalgengi fyrsta fjórðungs árins 2025 (1 evra = 145,63 ísk) voru tekjur 14,7 milljarðar króna, EBITDA 2,2 milljarðar og hagnaður 1,1 milljarðar. Séu niðurstöður efnahagsreiknings reiknaðar til íslenskra króna á gengi 31. mars 2025   (1 evra = 142,7 ísk) voru eignir samtals 138,6 milljarðar króna, skuldir 70,5 milljarðar og eigið fé 68,1 milljarðar.

    Hluthafar

    Lokaverð hlutabréfa 31. mars 2025 var 66,8 kr. á hlut og var markaðsvirði félagsins þá 128,6 milljarðar króna. Fjöldi hluthafa var 1.661.

    Samþykkt árshlutareiknings

    Árshlutareikningurinn var samþykktur á stjórnarfundi Brims hf. 27. maí 2025. Árshlutareikningurinn er í samræmi við alþjóðlega reikningsskilastaðla (IFRS – International Financial Reporting Standards). Árshlutareikningurinn hefur hvorki verið kannaður né endurskoðaður af endurskoðendum félagsins.

    Brim hf.

    Brim er öflugt sjávarútvegsfyrirtæki sem starfar í sátt við samfélagið og umhverfið. Við stuðlum að verðmætasköpun í sjávarútvegi með vöruþróun, tæknilausnum og öflugu starfsfólki. Við tryggjum með ábyrgum veiðum og vinnslu, þar sem áhersla er á sjálfbærni og nýsköpun, að sjávarútvegur verði áfram burðarstólpi í íslensku samfélagi. Við leitum allra leiða til að lágmarka áhrif starfseminnar á umhverfið hvort sem er á sjó eða í landi.

    Fjárhagsdagatal

    Annar ársfjórðungur        28. ágúst 2025Þriðji ársfjórðungur        20. nóvember 2025Fjórði ársfjórðungur        26. febrúar 2026

    Nánari upplýsingar

    Nánari upplýsingar veitir Guðmundur Kristjánsson forstjóri, sími 550-1000.

    Viðhengi

    Brim Árshlutareikningur 31.03.2025 Brim kynning F1 2025 Afkoma Brims hf 1F 2025